Það er svolítil vinna í kjólunum enda eru þeir bara eins og litlir dúkar... en hér koma myndir af þeim
Ég óttaðist það að frænkum mínum þættu kjólarnir of gegnsæir þannig að ég ákvað að hekla nærbuxur sem enduðu svo sem bikiní en ég gerði þau bara upp úr mér:)
Uppskriftina af kjólunum má finna inn á Ravelry:
http://www.ravelry.com/patterns/library/morning-glory-fashion-doll-dress
Ég notaði heklunál 1,75 mm en svo er garnið mismunandi:
Bleika garnið: Coats Puppets Eldorado 10
Fjólubláa garnið: Sandnes Garn Mandarin Heklegarn
Rauða garnið: Marks & Kattens Merc. Bomullsgarn 12/3
3 comments:
Þetta er ekkert smá flott hjá þér :)
Dásamlegir kjólar. Sundfötin eru yndisleg.
Mikið er gaman að skoða þessi fallegu handverk sem að þú gerir :)
kv. Kristín
Skrifa ummæli