Ég hef aldrei átt nein fín prjónamerki. Ég hef nú bara notað garnspotta sem ég setti hnút á svo að þeir mynduðu lykkju og svo notaði ég öryggisnælu í heklinu þar sem það þarf að vera hægt að opna það... hafði reynt að nota bréfaklemmu en hún datt oft úr :) Þau gerðu sitt gagn en mér fannst samt garnprjónamerkin detta ansi oft af án þess að ég yrði vör við það... en kannski ér ég bara klaufi :)
Ég var í gær að stytta hálsmen sem ég gerði og fyrst að ég var á annað borð komin með skartgripadraslið á borðið þá var ekki annað hægt að en búa mér til almennileg prjónamerki... amk fallegri :)
Fyrst prufaði ég að gera með grænum perlum... en mér fannst þau ekki vera ég... svo að ég gerði bleik og þau hittu í mark... ég er nú svolítið hrifin af bleiku :) Svo gerði ég eitt opnanlegt sérstaklega fyrir heklið en það er í raun bara eyrnalokkur :)
1 comments:
Glæsilegt!
Það er líka lúmskt gaman að útbúa prjónamerki... tala nú ekki um þegar nóg er úrvalið af perlunum :-)
Skrifa ummæli