Crystal Peak Snowflake - íslensk þýðing

Heklað snjókorn uppskrift

Crystal Peak Snowflake

Höfundur af þessari uppskrift er Deborah Atkinsson (http://www.snowcatcher.net/). Uppskriftin er þýdd og birt hér með leyfi höfundar. Það má ekki afrita uppskriftina á neinn máta nema með leyfi höfundar.

Upprunaleg uppskrift:
http://www.snowcatcher.net/2011/10/snowflake-monday_10.html
Uppskriftin á Ravlery:
http://www.ravelry.com/patterns/library/crystal-peak-snowflake

Mælt með: heklugarn nr. 10 og 1,25 mm heklunál (1,5 mm á Ravlery).

Skammstafanir:
ll = loftlykkja,
kl = keðjulykkja, 
fl = fastalykkja, 
hst = hálfstuðull,
st = stuðull,
tbst = tvöfaldur stuðull,
llb = loftlykkjubogi,
sl = sleppa

ATHUGIÐ! Þegar höfundurinn talar um að endurtaka frá * X sinnum þá þýðir það í raun að þið gerið þetta einu sinni og svo eigið þið að endurtaka það sem þið voruð að gera X sinnum til viðbótar. Dæmi: endurtakið frá * 4 sinnum þýðir að þið gerið hlutinn 5 sinnum.

Aðferð:
4 ll, kl í 1. ll EÐA gerið galdralykkju.

1. umf: 3 ll (telur sem 1 st), 2 st í hringinn, *4 ll, 3 st í hringinn; endurtaka frá * 4 sinnum; 2 ll, 1 st í 3. ll af byrjunar 3 ll (telur sem síðasti 4 ll llb). Dragið galdralykkjuna vel saman en skiljið eftir nógu stórt gat þannig að lykkjunar liggi sléttar.

2. umf: 3 ll (telur sem 1 st), 2 st í sama bil, 1 hst í sama bil, *1 hst í næsta 4 ll llb, 3 st í sama bil, 3 ll, 3 st í sama bil, 1 hst í sama bil; endurtaka frá * 4 sinnum; 1 hst í byrjunar bilið, 3 st í sama bil, 1 ll, 1 st í 3. ll af byrjunar 3 ll (telur sem síðasti 3 ll llb).

3. umf: 1 fl utan um st sem var gerður, 9 ll, *1 fl í næsta 3 ll llb, 9 ll; endurtaka frá * 4 sinnum; kl í byrjunar fl.

4. umf: *2 fl í næsta 9 ll llb, 3 hst í sama bil, 3 st í sama bil, 3 hst í sama bil, 2 fl í sama bil; endurtaka frá * 5 sinnum; kl í byrjunar fl.

5. umf: 1 fl í sömu fl og kl, 1 fl í næstu fl, *1 ll, sl 1 hst, 1 hst í næsta hst, 1 ll, sl 1 hst, 1 st í næsta st, 1 ll, 1 tbst í næsta st, 1 ll, 1 tbst í sama st, 1 ll, 1 tbst í sama st, 1 ll, 1 st í næsta st, 1 ll, sl næsta hst, 1 hst í næsta hst, 1 ll, sl næsta hst, 1 fl í hverja næstu 4 fl; endurtaka frá * 5 sinnum, en sleppa síðustu 2 fl í síðustu endurtekningunni; kl í byrjunar fl. 

6. umf: kl í næstu fl, *1 fl í næsta 1 ll llb, 1 hst í sama bil, 1 st í sama bil, 2 st í hvern af næstu tveimur 1 ll llb, 3 st í næsta 1 ll llb, 2 ll, 3 st í næsta 1 ll llb, 2 st í hvern af næstu tveimur 1 ll llb, 1 st í næsta 1 ll llb, 1 hst í sama bil, 1 fl í sama bil; endurtaka frá * 5 sinnum; kl þétt í byrjunar fl.

7. umf: *9 ll, 1 fl í næsta 2 ll llb, 1 hst í sama bil, 1 st í sama bil, 8 ll, 1 tbst í 5. lykkju frá nálinni, 1 tbst í hverja af næstu 2 ll, 3 ll, kl í næstu ll, 1 st í sama 2 ll llb eins og síðasti st, 1 hst í sama bil, 1 fl í sama bil, 9 ll, kl á milli 2 fl í næsta 2 fl-hóp; endurtaka frá * 5 sinnum; klippa. Ganga frá endum.

Þýðing: Ólöf Lilja Eyþórsdóttir

0 comments:

Skrifa ummæli