Spindrift I - Íslensk þýðing

Heklað snjókorn - uppskrift
 
Spindrift I
Höfundur af þessari uppskrift er Deborah Atkinsson (http://www.snowcatcher.net/). Uppskriftin er þýdd og birt hér með leyfi höfundar. Það má ekki afrita uppskriftina á neinn máta nema með leyfi höfundar.

Upprunaleg uppskrift:
http://www.snowcatcher.net/2011/04/snowflake-monday_25.html
Uppskriftin á Ravlery:
http://www.ravelry.com/patterns/library/spindrift-i

Mælt með: heklugarn nr. 10 og 1,25 mm heklunál (1,5 mm á Ravlery).

Skammstafanir:

ll = loftlykkja,
kl = keðjulykkja, 
fl = fastalykkja,
hst = hálfstuðull, 
st = stuðull,
tbst = tvöfaldur stuðull, 
sl = sleppa,
L = lykkja

ATHUGIÐ! Þegar höfundurinn talar um að endurtaka frá * X sinnum þá þýðir það í raun að þið gerið þetta einu sinni og svo eigið þið að endurtaka það sem þið voruð að gera X sinnum til viðbótar. Dæmi: endurtakið frá * 4 sinnum þýðir að þið gerið hlutinn 5 sinnum.

Aðferð:
6 ll, tengja með kl í 1.ll EÐA gerið galdralykkju.

1. umf: 12 fl í hringinn; kl í byrjunar fl. Ekki þrengja galdralykkjuna of mikið.

2. umf: 1 fl í sömu fl og kl; *5 ll, sl 1 fl, 1 fl í næstu fl; endurtaka frá * 4 sinnum; 2 ll, 1 st í byrjunar fl (2 ll og 1 st telur sem síðustu 5 ll).

3. umf: 1 fl utan um síðasta st í umf 2, *8 ll, 1 fl í næsta 5 ll llb; endurtaka frá * 4 sinnum; 4 ll, 1 tbst í byrjunar fl (4 ll og 1 tbst telur sem síðustu 8 ll).

4. umf: 1 fl utan um tbst sem var gerður, 12 ll, *1 fl í næsta 8 ll llb, 12 ll; endurtaka frá * 4 sinnum; kl í byrjunar fl.

5. umf: *Í næsta 12 ll llb gerið 3 fl, 3 hst, 3 st, 3 hst, 3 fl; endurtaka frá * 5 sinnum; kl í byrjunar fl.

6. umf: 1 fl í sömu L og kl, *3 ll, sl næstu 2 L, 1 hst í næstu L, 3 ll, sl 1 L, 1 st í næstu L, 3 ll, sl 1 L, 1 tbst í næstu L, 3 ll, 1 tbst í sömu L, 3 ll, sl næstu L, 1 st í næstu L, 3 ll, sl næstu L, 1 hst í næstu L, 3 ll, sl næstu 2 L, 1 fl í næstu L, 1 fl í næstu L; endurtaka frá * 5 sinnum, en sleppið síðustu fl í síðustu endurtekningunni; engin kl til að enda þessa umf.

7. umf: *2 fl í næsta 3 ll llb, 2 fl í næsta 3 ll llb, 3 ll, 2 fl í sama bil, 2 fl í næsta 3 ll llb, 3 ll, 2 fl í sama bil, 1 fl í næsta 3 ll llb, 1 hst í sama bil, 1 st í sama bil, 3 ll, 2 st í 3. L frá nálinni, 5 ll, 1 fl í 5. L frá nálinni, 6 ll, kl í fl, 4 ll, kl í fl, 3 ll, 2 st í 3. L frá nálinni, 1 st í sama 3 ll llb, 1 hst í sama bil, 1 fl í sama bil, 2 fl í næsta 3 ll llb, 3 ll, 2 fl í sama bil, 2 fl í næsta 3 ll llb, 3 ll, 2 fl í sama bil, 2 fl i næsta 3 ll llb; endurtaka frá * 5 sinnum; kl í byrjunar fl; klippa. Ganga frá endum.

Þýðing: Ólöf Lilja Eyþórsdóttir

0 comments:

Skrifa ummæli