Golden Anniversary Snowflake - íslensk þýðing


Heklað snjókorn - uppskrift


Golden Anniversary Snowflake

Höfundur af þessari uppskrift er Deborah Atkinsson (http://www.snowcatcher.net/). Uppskriftin er þýdd og birt hér með leyfi höfundar. Það má ekki afrita uppskriftina á neinn máta nema með leyfi höfundar.

Upprunaleg uppskrift:
http://www.snowcatcher.net/2010/02/snowflake-monday_15.html
Uppskriftin á Ravlery:
http://www.ravelry.com/patterns/library/golden-anniversary-snowflake

Mælt með: heklugarn nr. 10 og 1,75 mm heklunál. 

Skammstafanir:
ll = loftlykkja,
kl = keðjulykkja, 
fl = fastalykkja, 
st = stuðull,
llb = loftlykkjubogi,
sl = sleppa

Aðferð:
4 ll, kl í 1. ll EÐA gerið galdralykkju.

1. umf: 12 fl í hringinn, kl í 1. fl. Þrengið galdralykkjuna vel.

2. umf: 8 ll (telur sem st og 5 ll), sl næstu fl og st í næstu fl, *5 ll, sl næstu fl og st í næstu fl; endurtaka frá * 3 sinnum í viðbót til að fá samtals 6 boga, 3 ll, st í 3. ll af 8 ll. 

3. umf: 6 ll (telur sem st og 3 ll), st utan um st fyrir neðan, 2 ll, kl í toppinn af 3 ll fyrir neðan, 2 ll, *st í næsta 5 ll llb, 3 ll, st í sama 5 ll llb (gert V), 2 ll, kl í toppinn á næsta st, 2 ll; endurtaka frá * 4 sinnum til viðbótar til að fá samtals 6 armar, kl í 3. ll af 6 ll. 

4. umf: kl í toppinn á næsta V, 3 ll (telur sem fyrsti st), st í sama bil, 3 ll, 2 st í sama bil, 4 ll, kl í næstu kl, 4 ll, *í næsta 3 ll llb gerið 2 st, 3 ll, 2 st, 4 ll, kl í næstu kl, 4 ll; endurtaka frá * 4 sinnum til viðbótar til að fá samtals 6 armar; kl í toppinn af byrjunar 3 ll.

5. umf: kl í næsta st og í næsta 3 ll llb, 3 ll (telur sem fyrsti st), 2 st í sama 3 ll llb, 5 ll, 3 st í sama 3 ll llb, 3 ll, st í næstu kl, 3 ll, *í næsta 3 ll llb gerið 3 st, 5 ll, 3 st, 3 ll, st í næstu kl, 3 ll; endurtaka frá * 4 sinnum til viðbótar til að fá samtals 6 arma; kl í 3. ll af byrjunar 3 ll.

6. umf: kl í hvern af næstu 2 st, kl í 5 ll llb, 3 ll (telur sem fyrsti st), 3 st í sama 5 ll llb, 3 ll, 2 st í 3. lykkju frá nálinni, 7 ll, fl í 5. lykkju frá nálinni, 12 ll, kl í fl, 5 ll, kl í fl, kl í hverja af næstu 2 ll, 3 ll, 2 st í 3. lykkju frá nálinni, 4 st í 5 ll llb fyrir neðan, 7 ll, sl næstu 3 st og næstu 3 ll, fl í næsta st, 8 ll, fl í 5. lykkju frá nálinni, 5 ll, kl í fl, 5 ll, kl í fl, kl í hverja af næstu 3 ll (unnið aftur niður arminn), fl í sama st, 7 ll, *í næsta 5 ll llb gerið 4 st, 3 ll, 2 st í 3. lykkju frá nálinni, 7 ll, fl í 5. lykkju frá nálinni, 12 ll, kl í fl, 5 ll, kl í fl, kl í hverja af næstu 2 ll, 3 ll, 2 st í 3. lykkju frá nálinni, 4 st í sama 5 ll llb, 7 ll, sl næstu 3 st og næstu 3 ll, fl í næsta st, 8 ll, fl í 5. lykkju frá nálinni, 5 ll, kl í fl, 5 ll, kl í fl, kl í hverja af næstu 3 ll (unnið aftur niður arminn), fl í sama st, 7 ll; endurtaka frá * 4 sinnum til viðbótar til að fá samtals 6 stórir og 6 litlir armar; kl í 3. ll af byrjunar 3 ll; klippa. Ganga frá endum.

Þýðing: Ólöf Lilja Eyþórsdóttir

0 comments:

Skrifa ummæli