Ravalanche Snowflake - Íslensk þýðing

Heklað snjókorn - uppskrift
 
Ravalanche Snowflake

Höfundur af þessari uppskrift er Deborah Atkinsson (http://www.snowcatcher.net/). Uppskriftin er þýdd og birt hér með leyfi höfundar. Það má ekki afrita uppskriftina á neinn máta nema með leyfi höfundar.

Upprunaleg uppskrift:
http://www.ravelry.com/discuss/crochet-snowflakes/2748614/1-25#3
Uppskriftin á Ravlery:
http://www.ravelry.com/patterns/library/ravalanche-snowflake

Mælt með: heklugarn nr. 10 og 1,65 mm heklunál.

Skammstafanir:

ll = loftlykkja,
kl = keðjulykkja, 
fl = fastalykkja, 
hst = hálfstuðull,
st = stuðull,
tbst = tvöfaldur stuðull,
fbst = fjórfaldur stuðull,
llb = loftlykkjubogi,
sl = sleppa

ATHUGIÐ! Þegar höfundurinn talar um að endurtaka frá * X sinnum þá þýðir það í raun að þið gerið þetta einu sinni og svo eigið þið að endurtaka það sem þið voruð að gera X sinnum til viðbótar. Dæmi: endurtakið frá * 4 sinnum þýðir að þið gerið hlutinn 5 sinnum.

Aðferð:

Gerið galdralykkju.

1. umf: 5 ll (telur sem fbst), 1 fbst í hringinn, 6 ll, *2 fbst í hringinn, 6 ll; endurtaka frá * 4 sinnum; kl í 5. ll af þeim sem voru gerðar í upphafi.

2. umf: 1 fl í næsta fbst, *4 ll, 2 st í 3. lykkju frá nálinni, 1 ll, 3 st í næsta 6 ll llb, 4 ll, 3 st í 3. lykkju frá nálinni (3/st hnútur gerður), 4 ll, 2 st í 3. lykkju frá nálinni (2/st hnútur gerður), 4 ll, 1 st í 3. lykkju frá nálinni (1/st hnútur gerður), 7 ll, kl í 2. lykkju frá nálinni, 1 fl í næstu ll, 1 hst í næstu ll, 1 st í næstu ll, 1 tbst í næstu ll, 4 ll, 1 st í 3. lykkju frá nálinni, 1 hst í ll á milli 1/st hnútsins og 2/st hnútsins, 3 ll, 2 st í 3. lykkju frá nálinni, 1 st í ll á milli 2/st hnútsins og 3/st hnútsins, 3 ll, 3 st í 3. lykkju frá nálinni, 1 tbst í ll á milli 2/st hnútsins og 3 st í 6 ll llb, 3 st í sama 6 ll llb, 4 ll, 2 st í 3. lykkju frá nálinni, 1 ll, 1 fl í hvern af næstu 2 fbst; endurtaka frá * 5 sinnum, en sleppið síðustu fl í síðustu endurtekningunni; kl í byrjunar fl; klippa, Ganga frá endum.

Þýðing: Ólöf Lilja Eyþórsdóttir

0 comments:

Skrifa ummæli