Ég var búin að hugsa um lengi að safna saman stuttermabolum sem voru orðnir lúnir af eiginmanninum og hekla mottu... en einhverra hluta vegna hafði ég ekki komið því í verk... núna þegar ég var að ganga frá þvotti þá ákvað ég að taka einn lúinn úr umferð og prófa að endurnýta hann. Ég hafði séð á netinu hvernig hægt væri að klippa boli til að fá langa ræmu sem er svo nýtt sem garn. Reyndar varð garnið mitt ekki eins fínt þar sem bolurinn sem ég var með var saumaður í hliðunum... en ég lét það duga... spurning um að versla framvegis bara saumalausa boli ;)
Hér er afraksturinn:
Heklunál: 12 mm.
Uppskrift: engin
Uppfært 24.04.2013
Hægt er að sjá hvernig gera má garn úr stuttermabolum hér:
http://www.fondrari.blogspot.com/2013/04/bolagarn-garn-gert-ur-stuttermabol.html
1 comments:
sniðugt og fallegt! Mig langar að gera gólfmottu úr svona gömlum bolum - og ætti að eiga efnið í hana miðað við stuttermabola-eigu eiginmannsins :-D
Skrifa ummæli