Ég var sem sagt að sauma fóður inn í hana í dag og setja rennilás... ætlaði að hafa þetta mjög einfalt en ég náði samt að flækja þetta fyrir mér og þurfti að rekja upp tvisvar þar sem ég var t.d. allt í einu komin með saum inn í töskuna... jæja ég þarf bara að æfa mig meira enda komin önnur taska á nálina sem ég mun þurfa líka að fóðra síðar ;)
Taskan er mjög fljóthekluð ef þið kunnið krókódílahekl (ef ekki þá getið þið séð hvernig á að gera það undir leiðbeiningar) og mér finnst hún bara mjög sæt :)
Garn: Marks & Kattens Big Trend
Heklunál: 5,0 mm
Uppskrift: byggt á http://www.ravelry.com/patterns/library/mermaid-tears-purse
2 comments:
mér finnst hún æðislega sæt og á nú sennilega eftir að drífa mig í að prófa svona flott hekl :)
Mjög flott.
Skrifa ummæli