Þá er það restin af snjókornunum sem ég heklaði... eða seinni parturinn af þeim sem voru í samheklinu inni á Handóðum heklurum og eitt sem var fyrir utan það sem fær að fljóta með :) Þeir sem hafa fylgst með Facebooksíðu bloggsins hafa auðvitað fengið þau beint í æð jafnóðum... en ég vildi safna þeim saman í bloggfærslu :)
Snjókorn # 6 - Third Red Mug Snowflake
Eitt af mínum uppáhalds snjókornum... fannst reyndar ekki alveg eins gaman að hekla það og alls ekki að stífa það... en bjútí is pein :)
Lengd frá armi til arms: 16 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,5 mm
Uppskrift: http://www.snowcatcher.net/2010/05/snowflake-monday_31.html
Íslensk þýðing: http://fondrari.blogspot.com/p/heklu-snjokorn.html
Snjókorn # 7 - Crystal Peak Snowflake
Það var fínt að hekla þetta snjókorn en ég stífði það svolítið öðruvísi en höfundurinn og þá er það svolítið í stíl við fyrsta snjókornið í samheklinu.
Lengd frá armi til arms: 14 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,5 mm
Uppskrift: http://www.snowcatcher.net/2011/10/snowflake-monday_10.html
Íslensk þýðing: http://fondrari.blogspot.com/p/blog-page.html
Snjókorn # 8 - Columbia Point Snowflake
Ég heklaði tvö af þessu snjókorni með mismunandi stórri heklunál... ég held að mér líki betur við það minna :)
Lengd frá armi til arms: 11,9 cm og 13,5 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,5 mm og 1,75 mm
Uppskrift: http://www.snowcatcher.net/2012/07/snowflake-monday_30.html
Íslensk þýðing: http://fondrari.blogspot.com/p/columbia-point-snowflake-hofundur-af.html
Snjókorn # 9 - Golden Anniversary Snowflake
Stórt fallegt snjókorn... en þau eru auðvitað öll falleg :)
Lengd frá armi til arms: 17,5 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,75 mm
Uppskrift: http://www.snowcatcher.net/2010/02/snowflake-monday_15.html
Íslensk þýðing: http://fondrari.blogspot.com/p/blog-page_6.html
Snjókorn # 10 - Spindrift I
Mér finnst þetta vera mjög fallegt snjókorn... er pottþétt í topp 5 ;)
Lengd frá armi til arms: 16 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,5 mm
Uppskrift: http://www.snowcatcher.net/2011/04/snowflake-monday_25.html
Íslensk þýðing: http://fondrari.blogspot.com/p/blog-page_3.html
Snjókorn # 11 - 12.12.12 Snowflake
Ég var ekki viss um hvort að ég ætti að hafa þetta með því að mér fannst það svolítið lítið... en samt var eitthvað svo fallegt við það :)
Lengd frá armi til arms: 11 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,5 mm
Uppskrift: http://www.snowcatcher.net/2012/12/snowflake-monday_24.html
Íslensk þýðing: http://fondrari.blogspot.com/p/blog-page_46.html
Snjókorn # 12 - Ravalanche Snowflake
Mér finnst þetta vera mjög fallegt snjókorn... þið eruð kannski búin að fatta það að ég er vog og á mjög erfitt með að velja á milli hluta ;) Þetta er jafnfram snjókorn vikunnar og það síðasta sem tekið verður fyrir í samheklinu.
Lengd frá armi til arms: 16,2 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,5 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/discuss/crochet-snowflakes/2748614/1-25#3
Íslensk þýðing: http://fondrari.blogspot.com/p/ravalanche-snowflake-hofundur-af-essari.html
Snjókornin hennar Deborah Atkinson eru svo falleg og hún hefur hannað svo mörg snjókorn að það var af nógu að taka og erfitt að velja úr þeim... mæli með því að þið kíkið á síðunna hennar en hún hefur verið að setja inn nýtt snjókorn á hverjum mánudegi og er það orðinn fastur liður hjá mér að kíkja vikulega á síðunna hennar :) Þið finnið síðuna hennar hér -> http://www.snowcatcher.net/
Leyfi svo einu snjókorni að fylgja með sem ég heklaði fyrir utan samheklið en ég varð auðvitað að hekla nokkur fyrir utan það :) Ég heklaði alls 24 snjókorn fyrir þessi jól en ég gerði tvö stykki af sumum sem voru í samheklinu :)
Crystal Fantasy Snowflake
Mjög fallegt snjókorn en það var pein að fara í gegnum uppskriftina því að ég gat ekki betur séð en að hún stemmdi ekki... en eftir nokkrar hártoganir og nokkrar upprakningar þá tókst þetta á endanum :) Það var líka erfitt að stífa þetta snjókorn og eiginlega alltof þröngt á þingi til að lykkjurnar lægju fallega... mér finnst þetta vera pínu hönnunargalli á snjókorninu... en engu að síður finnst mér það fallegt :)
Lengd frá armi til arms: 12 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,5 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/crystal-fantasy-snowflake
Ég mátti til með að smella mynd af frumraun minni í snjókornahekli... en ég hafði samt bara heklað þau áður en ég byrjaði á snjókornunum fyrir þessi jól... en þau heklaði ég árið 2010 en ég hafði lært að hekla fyrr á því ári... mér finnst þau mjög flott þó að þau séu ekkert í líkingu við snjókornin sem ég var að hekla núna fyrir þessi jól :)
Ég man ekkert hvaða heklunálastærð en mjög líklega 1,75 mm eins og segir í uppskriftinni. Ég notaði heklugarn nr. 10 og uppskriftina má finna hér -> http://prjoniprjon.blogspot.com/2008/12/snjkorn.html
** VIÐBÓT 14.12.2013 **
Ég er að steingleyma einu snjókorni sem ég heklaði sem komst ekki með í samheklið... en ég gat ekki betur séð en það væri villa í uppskriftinni og ég vildi því ekki hafa hana með í samheklinu.
July 26 Snowflake
Lengd frá armi til arms: 16,5 cm
Garn: DMC Babylo size 10
Heklunál: 1,75 mm
Uppskrift: http://www.snowcatcher.net/2010/07/snowflake-monday_26.html
1 comments:
Hvert ödru fallegra og ekki nokkur leid ad velja á milli.
Skrifa ummæli