23. mars 2013

Yndislegt garn frá Knit Picks

Ég er sjalaóð... og núna finnst mér ekkert fallegra en lace sjöl... eftir að ég heklaði Miðnætursumarsjalið mitt :) Garnið í því var samt tæpt enda hef ég þurft að laga það tvisvar :/ En ég er búin að birgja mig upp af garni en maðurinn minn var að koma frá Ameríku og ég pantaði garn og lét senda það á hótelið sem hann gisti á (finnst ég vera rosalega sniðug) ;)

Hér er svo mynd af þessari dásemd:

Yndislegt garn frá Knit Picks

Ég hefði auðveldlega getað fyllt töskuna hans en ég varð bara að velja mína uppáhaldsliti... þetta eru þrjár tegundir og tveir litir úr hverri tegund en í sumum tegundum var ekkert rosalega mikið úrval... hefði t.d. alveg viljað meira af bleikum því að það er minn litur ;) Þetta er garn í sjö sjöl... en mamma pantaði bleikt sjal og þess vegna er tvöfaldur skammtur af bleika garninu ;)

Svo er bara spurning hvenær ég hef tíma til að hekla úr þessu... en það verður amk ekki fyrr en eftir próf! Þó að það sé freistandi að byrja að hekla núna um páskana ;) En þangað til get ég klappað því (eða eftir tvo daga þegar það kemur úr frystinum... vil vera viss um að það komi engir ferðafélagar með hehehe) og spáð í hverju þeirra ég eigi að byrja á :)

Ef þið eruð að spá í hvaða týpur og litir þetta eru þá er þetta það sem ég keypti:

Gloss Lace - litir: Lilac & Marina (lengst til hægri á myndinni)
http://www.knitpicks.com/yarns/Gloss_Lace_Yarn__D5420172.html

Shadow Tonal - litir: Springtime & Summer Blooms (fyrir miðju á myndinni)
http://www.knitpicks.com/yarns/Shadow_Tonal_Lace_Yarn__D5420166.html

Shimmer - litir: Elderberry & Shallows  (lengst til vinstri á myndinni)
http://www.knitpicks.com/yarns/Shimmer_Hand_Dyed_Lace_Yarn__D5420112.html

18. mars 2013

Hekluð krókódílataska

Ég held að ég hafi ekki erft saumagenin hennar móður minnar... mér finnst ég vera miklu flínkari að hekla en að sauma og reyndar finnst mér það líka miklu skemmtilegra... þannig að það er ástæðan fyrir því að ég er fyrst núna að klára þessa tösku :)

Ég var sem sagt að sauma fóður inn í hana í dag og setja rennilás... ætlaði að hafa þetta mjög einfalt en ég náði samt að flækja þetta fyrir mér og þurfti að rekja upp tvisvar þar sem ég var t.d. allt í einu komin með saum inn í töskuna... jæja ég þarf bara að æfa mig meira enda komin önnur taska á nálina sem ég mun þurfa líka að fóðra síðar ;)

Hekluð krókódílataska

Saumaði fóður inn í hana

Hekluð taska


Taskan er mjög fljóthekluð ef þið kunnið krókódílahekl (ef ekki þá getið þið séð hvernig á að gera það undir leiðbeiningar) og mér finnst hún bara mjög sæt :)

Garn: Marks & Kattens Big Trend
Heklunál: 5,0 mm
Uppskrift: byggt á http://www.ravelry.com/patterns/library/mermaid-tears-purse

13. mars 2013

Sjampóbrúsi fær nýtt líf


Eins og kom fram í síðustu færslu þá er ég mjög hrifin af því þegar hægt er að búa til einhverja nytsamlega hluti úr hlutum sem annars færu í ruslið.

Ég kláraði hentugan sjampóbrúsa og ætlaði reyndar að reyna að gera hulstur undir símann þegar hann er í hleðslu en sá að síminn var of breiður... en ég fann önnur not fyrir hann eða sem hirsla sem hangir á veggnum við hliðina á töflunni minni og geymir núna töflutússið.

Brúsinn var mjög heppilegur því að það voru bara límmiðar á honum sem ég gat plokkað af... en hér kemur mynd af töflutússgeymslunni.



Hugmynd fengin héðan:
http://www.makeit-loveit.com/2011/12/holder-for-charging-cell-phone-made-from-lotion-bottle.html

7. mars 2013

Heklaður hitaplatti úr stuttermabol

Ég elska þegar hægt er að endurnýta hluti... nota hluti í stað þess að henda þeim og gefa þeim þannig framhaldslíf sem eitthvað allt annað :)

Ég var búin að hugsa um lengi að safna saman stuttermabolum sem voru orðnir lúnir af eiginmanninum og hekla mottu... en einhverra hluta vegna hafði ég ekki komið því í verk... núna þegar ég var að ganga frá þvotti þá ákvað ég að taka einn lúinn úr umferð og prófa að endurnýta hann. Ég hafði séð á netinu hvernig hægt væri að klippa boli til að fá langa ræmu sem er svo nýtt sem garn. Reyndar varð garnið mitt ekki eins fínt þar sem bolurinn sem ég var með var saumaður í hliðunum... en ég lét það duga... spurning um að versla framvegis bara saumalausa boli ;)

Hér er afraksturinn:

Heklaður hitaplatti úr stuttermabol

Heklaður hitaplatti úr stuttermabol


Garn: Stuttermabolur klipptur niður í ræmur
Heklunál: 12 mm.
Uppskrift: engin

Uppfært 24.04.2013
Hægt er að sjá hvernig gera má garn úr stuttermabolum hér:
http://www.fondrari.blogspot.com/2013/04/bolagarn-garn-gert-ur-stuttermabol.html

1. mars 2013

Hekluð páskalilja

Ég les oft handavinnublogg... og eitt af bloggunum sem ég elska er bloggið hennar Lucy :) Hún setti inn í gærkvöldi uppskrift af hekluðum páskaliljum... og auðvitað smellti ég í eina en ég var búin að skoða mikið af uppskriftum og hafði ekkert fundið sem ég féll alveg fyrir :)


Mjög auðveld uppskrift en hún er einnig með mikið af myndum... ef ég myndi gera fleiri þá held ég að ég myndi vilja hafa bikarinn hærri og svo er spurning með annað garn... fræbblanir rakna bara upp :)

Hekluð páskalilja

Garn: Kambgarn
Heklunál: 3,5 mm
Uppskrift: http://attic24.typepad.com/weblog/crochet-daffodil.html

24. febrúar 2013

Miðsumarnætursjalið mitt

Loksins fékkst aftur fjólubláa pallíettugarnið... mig langaði svo til að hekla eitt handa mér en ég var svo hrifin af sjalinu sem ég heklaði handa ömmu... en ég er samt eiginlega búin að ákveða að hekla ekki enn eitt Elise sjalið þar sem ég stækka þau alltaf aðeins og vængirnir verða bara ekki jafn langir... er ekki alveg að fíla það.

Ég ákvað að ég þyrfti nú fyrst að klára annað sjal sem ég var búin að henda frá mér vegna annarra spennandi verkefna (er meira segja með eitt annað sjal óklárað sem ég er í fýlu út í)... þannig að ég spýtti í lófana og kláraði sjalið... og var nú ekkert sérlega lengi að því :)

Midsummer Night’s Shawl

Heklað sjal

Midsummer Night’s Shawl

Midsummer Night’s Shawl

Mér finnst svona þunn "lace" sjöl vera æðislega falleg... garnið sem ég notaði var Randalína I...ég veit ekki hvort að það fáist ennþá en ég var búin að eiga það í nokkur ár... garnið var á köflum eins og tvinni en kannski var það pínu mér að kenna því að ég vatt það upp í höndunum en ég veit það samt ekki. En það er engu að síður mjög fallegt og fíla það mun betur en Randalínu II þar sem mér finnst það pínu þykkt. Ef ég myndi gera svona sjal aftur þá held ég að ég myndi nota einlitt garn þar sem mér finnst mynstrið ekki alveg fá að njóta sín þar sem litaskiptin draga athyglina frá mynstrinu.

Uppskriftin er með charti en ég var samt í vandræðum eins og svo margir aðrir skv. því sem ég sá á Ravelry... rakti upp kantinn nokkrum sinnum en ég var samt ekki 100% sátt við útkomuna því að mér finnst það stækka fullmikið á þessum parti... en þetta sleppur og mér finnst sjalið mitt vera gullfallegt og er það strax orðið uppáhaldssjalið mitt!

Garn: Evilla Artyarn 8/1
Heklunál: 3,5 mm.
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/midsummer-nights-shawl

1. febrúar 2013

Hekluð tuska

Stundum er bara fínt að gera eitthvað lítið og einfalt... svona eins og tuskur... er komin með eitthvert æði að ég held bara ;)

Ég fékk mér nýtt heklunálasett (sem er bara æði)... þannig að ég varð auðvitað að prufa það og fann mér einfalda uppskrift á Ravelry... en þetta er svo einfalt að maður þarf nú ekkert uppskrift... en hér er afraksturinn...

Hekluð tuska

Hekluð tuska

Hekluð tuska

Ég get stundum bara ekki fylgt uppskriftum... í þetta sinn þá áttu að koma fastalykkjur eftir 14 umferðir og svo aftur halda áfram með mynstrið... en ég taldi að það væri ekki að fara að gera sig svo að ég hélt bara áfram. Setti svo 2 umf. af fastalykkjum í kringum hina þrjá kantana. Ef ég myndi fara að gera svona tusku aftur þá myndi ég bara byrja á mynstrinu og hekla svo tvær umferðir af fastalykkjum í kringum stykkið í lokin :)

Garn: Mandarin Classic
Heklunál: 3.5 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/trigrit-dishcloth


Viðbót 02.02.13
Stærðin á tuskunni er ca. 25 x 19 cm og en ég lét bara eina dokku duga. Ef ég gerði aftur þá myndi ég gera færri loftlykkjur til að reyna að fá hana jafnari á alla kanta.