Hekluðu blómapottarnir voru gerðir í fyrra en ég notaði þá aftur í sumar... garnið sem var dökkbleikt er eiginlega orðið ljósbleikt.
Heklaði utan um stóra krukku þar síðasta sumar... vonandi verður ekki rigning í kvöld svo að ég geti haft kveikt á kertinu :)
Ég eyddi ansi mörgum tímum í að hekla þessar veifur. Uppskriftin af þríhyrningunum heitir Motif 70 og má finna í bókinni Beyond the Square Crochet Motifs eftir Edie Eckman. Mjög eiguleg bók með skemmtilegum dúllum sem eru alls konar í laginu. Ég reyndar heklaði allt nýja skrautið í ár úr bókinni :)
Ég heklaði bara loftlykkur og svo fastalykkur á þríhyrningana og svo saumað ég þrjár perlur neðst til að þyngja veifurnar.
Hekluð stjarna á ljósastaur. Ég gerði nokkrar svona enda ferlega skotin í þessari dúllu :)
Enn ein stjarnan... orðin aðeins blaut og skítug eftir rigninguna :(
Þessi dúlla var fallegri áður en hún kom upp á staurinn enda sést hún ekki alveg nógu vel svona :)
Þessi dúlla var nú ekki mjög falleg þegar ég var búin að festa hana á staurinn en hún var mjög sæt fyrir... gleymdi að taka mynd af henni áður en ég festi böndin í hana.Ein afgangsveifa fékk að fara upp á einn ljósastaur.
Garnið sem ég notaði í skrautið í ár var annars vegar Kartopu Basak og hins vegar Julia frá Steinbach Wolle og svo notaði ég 4,0 mm hekunál.