Sýnir færslur með efnisorðinu Ljósaseríur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Ljósaseríur. Sýna allar færslur
14. desember 2014
Föndrað í desember
Ég tók í dag myndir af nýjustu krukkunni sem ég var að hekla utan um og setti inn á Facebooksíðuna en svo langaði mig að bæta við einni mynd af henni í myrkri því að mér finnst skugginn af henni vera geðveikur... þannig að ég endaði bara á að taka fullt af myndum og skella í einn bloggpóst enda er ég búin að vera frekar löt að blogga :)
Ég sem sagt datt í heklgírinn í desember og var sko ekkert að hekla jólagjafir handa neinum heldur bara kósídót handa mér :) Mér datt í hug að hafa heklaðar hvítar krukkur á bakka og langaði að hekla úr fínna garni en ég hafði gert. Þrjár þeirra sem sjást hérna eru úr Satúrnus garninu og sú nýjasta er úr Solberg garni.
Hér er svo mynd af bakkanum en núna langar mig bara í hvítar krukkur þannig að ég á örugglega eftir að hekla fleiri úr Solberg garninu ;) Hinar krukkurnar heklaði ég úr Satúrnus garninu en mér fannst það ekki nógu fínlegt.
Í fyrra var ég með fullt af hekluðum snjókornum í gluggunum og svo hafði ég heklað utan um nokkrar jólakúlur sem héngu á trénu ásamt nokkrum hekluðum stjörnum sem ég keypti í IKEA. Þannig að þegar ég byrjaði að tína fram smá skraut þá langaði mig svolítið til að halda í hvítt heklþema um jólin. Ég dró því fram hekluðu jólabjöllurnar sem voru það fyrsta sem ég heklaði eftir að ég lærði að hekla fyrir tæpum fimm árum (og var ástæðan fyrir að ég skellti mér á heklnámskeið eins og ég hef nú áður skrifað um) og skellti ofan á grenilengju. Ég varð auðvitað að draga fram uppskriftina og hekla nýjar bjöllur í hinn gluggann svo að þetta gæti verið í stíl. Ég þurfti reyndar að skipta um seríu þar sem hin var með hvítri snúru en þá var svo svakalega stutt á milli peranna í 10 ljósa seríunum þannig að ég keypti 20 ljósa en setti þá bara bjöllur á aðra hverja peru. Þá fannst mér þessar gömlu vera ekki nógu hvítar eins og nýju bjöllurnar þannig að þá bara varð maður að hekla fleiri bjöllur en ég tók bara Game of Thrones maraþon á meðan :)
Hekluðu bjöllurnar skreyta svo mikið að mér fannst eiginlega ekki pláss fyrir mikið meira en nokkra köngla og pínku pons skraut :)
Skellti einni mynd af gluggunum mínum svo að þið sjáið afhverju ég gat ekki verið með "gular" bjöllur öðrum megin en það sást þó meira í dagsbirtunni ;)
Bjöllur:
Garn: Solberg 12/4
Heklunál: 1,75 mm
Uppskrift: https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?advtype=59&advid=16385444
Krukkur:
Garn: Satúrnus og Solberg 12/4
Heklunál: 2,5 mm og 1,75 mm
Uppskrift: engin
Labels:
Heklað,
Jólaskraut,
Krukkur,
Ljósaseríur
27. nóvember 2012
Hekluð stjörnuljós
Ég elska að hekla og ég elska ljósaseríur... þar af leiðandi þá hannaði ég þessa ljósaseríu. Ég er dálítið hrifin af fjólubláu þannig að litavalið var ekki erfitt en ég gerði nokkrar tilraunir áður en ég endaði á stjörnunum :)
Ég nota einband í stjörnunar en ég er svolítið hrifin af ull utan um ljósaseríur þar sem það kveiknar ekki í ullinni heldur sviðnar hún (samt spurning hvort að það sé eins þegar kominn sykur á). Samt sem áður þá tek ég alltaf ljósaseríur úr sambandi þegar ég fer að sofa eða er ekki heima :) En nánar um stjörnuljósin hér eru nokkrar myndir af þeim...
Ég stífði stjörnunar úr sykurvatni en ég er dálítið bráðlát því að stjörnurnar eru ekki enn orðar fullstífar... reyndar verður einbandið ekki glerhart en þó mun stífari en þær eru núna :) Ljósaserían er með 10 ljósum og er ég bara búin að setja 5 stjörnur á seríuna en hinar sem upp á vantar eru enn blautar. Ég reyndar vil setja þær upp á seríuna áður en stjörnunar fullharðna svo að ég verði ekki í erfiðleikum með að koma þeim upp á perustæðið. Svo læt ég seríuna hanga á standlampa þannig að stjörunar beyglist ekki :)
Skelli hérna inn myndum af stjörnunum í stífingu líka... ég hefði kannski mátt títa stjörnurnar meira niður til að fá þær jafnari en ég lenti í títuprjónahallæri... enda þarf þetta ekki að vera svo fullkomið ;)
Ég mun örugglega bæta við fleiri myndum þegar serían er orðin tilbúin... þannig að ég mun kannski skipta þessum út :)
Garn: Einband
Heklunál: 3,5 mm
Uppskrift: upp úr mér

Ég elska skuggana sem koma af stjörnunum... finnst ykkur þeir ekki flottir? :)

20. ágúst 2012
Hekluð og stífð blóm á ljósaseríu
Nú er kertaljósatíminn aftur runninn upp og þar sem ég er dálítið hrifin af ljósaseríum til að lífga upp skammdegið þá heklaði ég þessi blóm og setti á seríu. Ég heklaði blómin úr appelsínugulu einbandi og notaði sykurvatn (50/50 hvítur strásykur leystur upp í sjóðandi vatni). Ég lét þau liggja í vatninu í smá stund, svo tók ég þau upp og vatt þau aðeins og svo títaði ég þau niður á plast (myndi mæla með því að setja plastfilmu ofan á plastið þar sem blómin vildu aðeins festast við).
Svo var bara að bíða eftir að blómin þornuðu. Þar sem ég ætlaði að setja þau á ljósaseríu þá þorði ég ekki að bíða eftir að þau fullhörðnuðu þannig að á ég smellti þeim á seríuna og lét hana svo hanga þar til þau voru tilbúin. Hér má svo sjá nokkrar myndir af útkomunni:
Blómin eru aðeins aðlöguð því að í uppskriftinni var ekki gert ráð fyrir að þau væru sett á ljósaseríu, en uppskriftina af þeim má finna í bókinni 100 Flowers to Knit & Crochet.
Garn: Einband
Heklunál: 3,5 mm
10. ágúst 2012
Það sem ég hef verið að bardúsa
Loksins blogga ég... en núna um helgina er Sumar á Selfossi og ég er búin að hengja upp það sem ég hef verið að gera :)
Ég auðvitað heklaði utan um skyrdósirnar og graffaði á snúrustaurinn og hafði það í hverfislitnum mínum... en svo bættist þetta við...
Ég auðvitað heklaði utan um skyrdósirnar og graffaði á snúrustaurinn og hafði það í hverfislitnum mínum... en svo bættist þetta við...
Heklaði blóm úr einbandi og hengdi á ljósaseríu
Hér sést betur hvernig blómin eru
Heklað hjartagraff úr tvöföldum bleikum plötulopa
Heklað graff úr tveimur litum af plötulopa og dúllerí úr einbandi
Svo er það stóra graffið...
... heklað úr tvöföldum plötulopa...
... og blómin úr léttlopa
Ég var ansi lúin og loppin þegar ég var búin að sauma þetta stóra stykki á staurinn... hefði betur byrjað á því en ekki endað... mér fannst saumurinn vera frekar ljótur þannig að ég saumaði fleiri blóm á hann þannig að fólk kannski hefur þá eitthvað annað að glápa á en sauminn ;)
Labels:
Graff,
Heklað,
Ljósaseríur,
Útiföndur
21. janúar 2012
Hekluð blómasería
Ég bara næ að föndra smá núna... kannski er ástæðan sú að ég minnkaði námið um eitt fag og/eða bara að það er stutt síðan skólinn byrjaði :)
Mig langaði til að skipta út þæfðu túlípanaseríunni minni sem er fjólublá yfir í eitthvað sumarlegra... er ekki alveg að koma vor? Mér finnst ég amk aðeins farin að finna fyrir að það birtir fyrr og er aðeins lengur bjart á daginn ;) Ég var búin að rekast á blómaseríur á netinu sem voru með einföldum blómum og þær voru þannig að blómin voru ekki þétt heldur gisin... vona að þið skiljið hvað ég meina :)
Ég fór því aðeins að fikta í gær og heklaði tvöföld blóm úr léttlopa en ég elska lopa :) Hér eru myndir af afrakstrinum þeas að hekluðu blómaljósaeríunni minni:
Garn: Léttlopi
Heklunál: 4 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/heklu-blomaljosaseria

Blóm,
Heklað,
Ljósaseríur,
Rómantík,
Uppskriftir
29. janúar 2011
Heklaðar bjöllur
Þetta var ástæðan fyrir því að ég skellti mér á námskeið hjá Fræðsluneti Suðurlands til að læra að hekla. Mig langaði svo svakalega að geta heklað mér svona jólabjöllur :) Það gleymdist alveg að kenna mér að hekla í grunnskóla og ég var búin að vera að skoða á netinu leiðbeiningar og skoða myndbönd á youtube... en svo sá ég auglýst þetta námskeið og ákvað að læra þetta nú almennilega :) Sé sko alls ekki eftir því enda hef ég verið óstöðvandi í heklinu.
Uppskriftina má finna hér:
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?advtype=59&advid=16385444
Uppskriftina má finna hér:
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?advtype=59&advid=16385444
Labels:
Bjöllur,
Heklað,
Ljósaseríur,
Rómantík,
Uppskriftir
Túlípana ljósaseríur
Ég fór eitt sinn á námskeið til að læra að gera hálsmen úr þæfðum kúlum. Þar var notuð merino ull sem þæfð var utan um trékúlur. (Hér getið þið séð skartgripina)
Ég rakst á netinu að það var verið að þæfa utan um golfkúlur og sett svo á ljósaseríur. Ég sá að flestir voru að gera þetta í þvottavél en ég var ekki til í að fórna minni... reyndar sá ég líka að sumir voru að nota frauðkúlur og prófaði það en mér fannst útkoman ekki nógu jöfn og falleg... það sannast að ekkert jafnast á við handgert :)
Þetta er auvitað mikil handavinna... en mér finnst þetta vera mjög skemmtilegt... svolítið minna samt í sniðum að gera í skartgripi. Mér fannst smartast að vera með hvítan grunnlit og setja svo annan yfir. Minn smekkur er að hafa þetta frekar þunnt en samt að hylja alveg yfir grunnlitinn. Ég notaði svo þynntan uppþvottalög til að þæfa úr. Mér fannst líka flott að stífa þær þannig að þær séu vel opnar og notaði ég stífelsi úr Föndru til verksins sem mig grunar nú að sé bara útþynnt trélím... amk var lyktin eins :) Þegar ég klára þetta stífelsi þá held ég að ég muni bara kaupa næst trélím og þynna það með vatni. Svo notaði ég límbyssuna til að tylla blómunum á seríuna því annars voru þau alltaf að detta af.
Efni: Íslensk kemba