Ég átti víst alltaf eftir að blogga um eldhúsgardínuna mína sem tók nokkur ár að hekla reyndar með löngum hléum... en ég var reyndar búin að pósta mynd á
Facebook síðunni í nóvember 😉
Ég flutti fyrir 5 árum og var staðráðin í að hekla mér eldhúsgardínu og hafði verið búin að kaupa gardínublað einhverju áður og hófst handa reyndar tæpu ári eftir að ég flutti eða í janúar 2015 (sé það inni á
Ravelry sem er snilld til að halda utan um alla hluti).
Þar sem mér leiðist afskaplega að vera endalaust að gera það sama þá kastaði ég þessu verkefni ansi oft frá mér og að lokum bara gleymdist það inni í skáp. Ég rakst svo á þetta aftur í október í fyrra og fletti upp hvenær ég hefði byrjað á því og þá ákvað ég að nú væri kominn tími á að klára og láta ekki enn fleiri ár líða 😂 Ég sá að það var mjög lítið eftir þannig að ég sat stíft við til að klára og upp skyldu gardínunar fyrir jól... það gerðist en ég reyndar uppskar geðveika vöðvabólgu í kjölfarið 😏
Það var pínu mál að strekkja gardínuna þar sem hún er svo löng en ekkert mál með góðum græjum 😁 Ég keypti þessa mottu á bland.is á sínum tíma og strekkivírana í Handprjón og hef sko notað þá mikið. Eina sem ég áttaði mig ekki á var hve gardínan lengdist mikið við strekkingu en ég gerði alveg ráð fyrir smá en þetta var mun meira en ég bjóst við svo að þá varð bara smá rykking/fellingar á gardínunni í glugganum.
Garn: Solberg Garn 12/4 Mercerisert
Heklunál: 1,75 mm
Uppskrift: Kafégardin med spindler úr Solberg hefte nr. 48
0 comments:
Skrifa ummæli