Þá er loksins kertið farið að brenna eitthvað niður... eftir að hafa haft það nánast logandi frá morgni til kvölds í nokkra daga ;)
Eins og sjá má þá er kertið farið að brenna niður og pappírinn verður eftir... og hann brennur ekkert enda bar ég vel á hann af Candle & Soap :)
Framhald af þessari færslu: http://www.fondrari.blogspot.com/2012/04/kerti-me-vintage-mynd.html
12. apríl 2012
Stórt heklað teppi
Þá er teppið sem ég var að hekla tilbúið... fannst mjög gott að hekla þetta yfir fyrirlestrum og yfir sjónvarpinu þar sem þetta er mjög einfalt og frekar fljótheklað... þar sem teppið er heklað úr svo grófu garni og bara stuðlar :) Ég valdi þetta garn þar sem það er nú ódýrara en Eskimo en hins vegar mjög svipað því garni... mjög mjúkt og gott... hins vegar þæfist það vel... en ég ætla samt að skella því í þvottavélina á ullarprógram og vindingu þar sem teppið er svo stórt og þungt :)
Mér sýnist stærðin vera ca. 130 x 190 cm... amk giska ég á það miðað við að rúmið sem ég setti teppið á er 135 x 200 :)
Finnst bara tveir gallar vera á teppinu... fyrsti er kanturinn... ég gat valið um að hafa hann kipraðan eða svona bylgjóttan (en mér sýndist það vera eins og í uppskriftinni)... hinn gallinn er að stóra táin fer alltaf út um götin þegar ég sit með teppið yfir mér... hehehe
Endilega fylgist með mér á Facebooksíðunni minni ef þið eruð ekki þegar búin að líka við hana :)
Garn: Trysil Garn Igloo
Heklunál: 9,0 mm
Uppskrift: http://www.garnstudio.com/lang/us/pattern.php?id=2175&lang=us

10. apríl 2012
Fleiri skreytt kerti
Ég gat ekki hætt að föndra í gær og föndraði því fleiri kerti... þetta er afraksturinn:
Þetta síðasta er minna en hin kertin... hins vegar þurfti ég að eyða heilu blaði í það þar sem hálft A4 dugði ekki utan um það... því að ég læt samskeytin fara vel yfir svo að það mun ekki leka með þeim. Er samt að spá í að láta myndirnar ekki ná uppfyrir brúnina á kertinu en ég hélt kannski að það væri betra... amk er flottara að hafa ekki brúnina uppfyrir á meðan kertin eru ónotuð.
Ég hafði kveikt á fyrsta kertinu sem ég gerði í marga klukkutíma í gær og það var ekki komið niður neitt að ráði... ég mun smella inn mynd þegar það fer að brenna niður til að sýna hvernig kertið verður eins og lugt :) Aldrei þessu vant þá fannst mér kertið ekki brenna nógu hratt ;)
Viðbót 29.11.2012:
Vegna fjölda fyrirspurna sem ég hef fengið þá ætla ég að skella bara svarinu hingað inn. Spurt hefur sem sagt hvar ég hafi fundið myndir til að setja á kertin. Svarið við því er að ég bara gúgglaði og gúgglaði. Yfirleitt þá myndaleitaði ég með orðinu vintage t.d. vintage postcards og vintage child :)
9. apríl 2012
Kerti með vintage mynd
Ég var búin að sjá myndir af kertum sem voru þannig að þegar þau brunnu niður þá varð eftir hólkur þannig að kertið varð eins og lampi... mér finnst það voðalega flott.
Þannig að ég ákvað að föndra eitt svoleiðis og á örugglega eftir að gera fleiri. Þetta er nú auðvelt en kannski svolítið tímafrekt að finna myndir :) Ég fann vintage mynd á netinu, prentaði hana út á frekar þykkan pappír, klippti til, penslaði bakhliðina með Candle & soap og setti á kertið... og þá var það tilbúið... ekki mikið mál... nú þarf ég bara að láta það loga svolítið ;)

Efni: pappír, Candle & Soap, kerti
Viðbót 29.11.2012:
Vegna fjölda fyrirspurna sem ég hef fengið þá ætla ég að skella bara svarinu hingað inn. Spurt hefur sem sagt hvar ég hafi fundið myndir til að setja á kertin. Svarið við því er að ég bara gúgglaði og gúgglaði. Yfirleitt þá myndaleitaði ég með orðinu vintage t.d. vintage postcards og vintage child :)
6. apríl 2012
Heklað sjal til sölu
Nokkrir hafa haft samband við mig og spurt hvort að ég myndi vilja selja svona Glamúrsjal (enda er þetta með eindæmum flott sjal... þó ég segi sjálf frá)... ég hef yfirleitt ekki verið að taka slíkt að mér en þar sem mér finnst svo gaman að hekla þá hef ég ákveðið að verða við því:)
Ég á akkúrat núna eitt svona glamúrsjal á lager en annars mun ég bara gera eftir pöntunum (reyndar verða litasprengdu sjölin aldrei eins en þessi mynd er af sjali sem ég hef þegar látið frá mér) .
Ég ákvað þá líka að hafa meira litaúrval en þó að mér þyki auðvitað þessi litur flottastur þá hefur fólk sem betur fer misjafnan smekk :) Þið getið séð verð og litarval undir Til sölu.
Ef ykkur langar til að eignast eitt þá bara sendið mér tölvupóst á fondrari@gmail.com :)

3. apríl 2012
Einfalt páskaföndur
Vantar ykkur eitthvað einfalt að föndra fyrir páskana? Þá er þetta svakalega flott handa skvísum á öllum aldri ;) Þið þurfið bara gula hárspöng, nokkra unga og lím :)
G L E Ð I L E G A P Á S K A !
17. mars 2012
Hálfnað verk þá hafið er
Stundum vill það verða að maður byrjar á hlutum og klárar þá ekki. Þar sem það er svolítið mikið að gera hjá mér í skólanum þá hef ég ekki haft eins mikinn tíma til að prjóna eins og ég hef svo oft áður kvartað yfir... en ég reyni alltaf að finna smá tíma inn á milli til að halda sönsum... þar sem ég er í fjarnámi þá hekla ég stundum yfir fyrirlestrunum ef ég þarf ekki að glósa mikið og svo þegar ég tek pásur eða horfi á sjónvarpið þá prjóna ég :)
Ég greip því þessa hálfkláruðu peysu sem ég byrjaði á fyrir rétt tæpu ári síðan en þar sem hún varð alltof stór (sjá þessa færslu) þá henti ég henni frá mér... núna var fínt að klára hana bara svona til að hafa eitthvað að gera yfir sjónvarpinu... hún passaði á sex ára frænku mína sem er alsæl með peysuna þó að ég þykist vita að hún hefði nú frekar viljað hafa hana fjólubláa... ég prjóna bara aðra handa henni í sumar úr léttlopa þar sem þessi hefði ekki mátt vera mikið minni :)
Garn: Plötulopi
Prjónar: 3,5 og 4,5 mm
Heklunál: 5,0 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/loki-20 (http://knittingiceland.is/2010/12/14/loki-a-free-pattern/?lang=is)
Ég greip því þessa hálfkláruðu peysu sem ég byrjaði á fyrir rétt tæpu ári síðan en þar sem hún varð alltof stór (sjá þessa færslu) þá henti ég henni frá mér... núna var fínt að klára hana bara svona til að hafa eitthvað að gera yfir sjónvarpinu... hún passaði á sex ára frænku mína sem er alsæl með peysuna þó að ég þykist vita að hún hefði nú frekar viljað hafa hana fjólubláa... ég prjóna bara aðra handa henni í sumar úr léttlopa þar sem þessi hefði ekki mátt vera mikið minni :)
Garn: Plötulopi
Prjónar: 3,5 og 4,5 mm
Heklunál: 5,0 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/loki-20 (
Labels:
Börn,
Lopapeysur,
Prjónað,
Uppskriftir