25. janúar 2013

Heklaðir þvottapokar eða tuskur

Ég veit að ég á að vera að læra um Gauss-Jordan eyðingu og margt fleira en það er bara miklu skemmtilegra að hekla ;)

Mig langaði bara til að hafa eitthvað svona til að grípa í yfir sjónvarpinu og ákvað að hekla tuskur eða þvottapoka... keypti gróft bómullargarn í A4, fann uppskrift og byrjaði strax að hekla... hvað annað?

Heklaðir þvottapokar eða tuskur

Uppskriftin er mjög einföld (eins og mottan mín) en ég breytti henni pínulítið því að ég ákvað að hekla kant í kringum með krabbahekli þar sem mér fannst vanta pínu punt :)

Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með hvíta garnið þar sem í báðum dokkunum voru skærbleikir blettir á því. Ég lét mig samt hafa það að klára að hekla úr skárri dokkunni sem hafði hnút í bónus að auki... en ég elska grófleikann á bandinu :)

Garn: Marks & Kattens Victoria
Heklunál: 4,0 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/nubbie-scrubbies

23. janúar 2013

Hekluð motta - ókeypis uppskrift

Ákvað að taka uppskriftina af hekluðu mottunni úr sölu og hafa hana ókeypis amk um tíma. Mikið væri nú gott ef allt í heiminum væri ókeypis :)

Hekluð motta

Hekluð motta - uppskrift

Væri gaman að fá að sjá myndir af ykkar mottum ef þið skellið í eina :)

Uppskriftina má nálgast hérna:

22. janúar 2013

Hekluð mús

Fékk þessa sætu bók í jólagjöf... en ég hafði bara einu sinni áður gert amigurumi... en það var skjaldbaka sem ég nota sem nálapúða.



Ég settist fyrir framan sjónvarpið í kvöld og bara varð að hekla eitthvað upp úr henni... fyrir valinu var þessi krúttlega mús...

Hekluð mús - amigurumi

Þegar ég fletti bókinni þá fannst mér á mörgum myndunum glitta ansi mikið í tróðið (stöffið inn í fígúrunum) hjá höfundi bókarinnar. Ég ákvað því að velja grófara garn en hélt mér við sömu heklunálastærð en valdi létt-lopa... músin er því þétthekluð en mér finnst það fallegra þegar verið er að hekla amigurumi fígúrur. Uppskriftin er mjög auðveld og vel skrifuð... og er afar fljótlegt að hekla músina. Sennilega fór mestur tíminn í að finna einhver augu :)

Önnur mynd af músinni

Garn: léttlopi
Heklunál: 4,0 mm
Uppskrift: Sugar mice úr Super-Cute Crochet: Over 35 Adorable Animals and Friends to Make

13. janúar 2013

Heklað vintage teppi

Það var samhekl (CAL) inni á grúbbunni Handóðir heklarar á Facebook á svakalega fallegu teppi... ég var auðvitað alveg sjúk en ég gat bara ekki leyft mér að byrja á öðru teppi þar sem ég er með annað í vinnslu og svo var brjálað að gera í skólanum og stutt í prófin... þannig að ég hét á mig að ef mér myndi ganga vel í prófunum þá gæti ég heklað þetta teppi í jólafríinu :) Það gekk eftir og ég byrjaði að hekla á Þorláksmessu.

Heklað vintage teppi

Það er verið að selja uppskrift af svona teppi og er ég með link á uppskriftina hér fyrir neðan. Ég veit auðvitað ekki alveg hvort að þetta sé eins þar sem ég fór ekki eftir neinni uppskrift heldur sá þetta bara út með því að skoða myndir af teppum inni á Ravelry.

Heklað vintage teppi útflatt

Heklað vintage teppi útflatt frá öðru sjónarhorni

Heklað teppi samanbrotið

Heklað vintage teppi kantur

Heklað vintage teppi í hrúgu

Heklað vintage teppi á stól

Teppið er mjög skemmtilegt að hekla og fljótheklað ef þið notið ekki mjög fínlegt garn. Ég notaði einfaldan plötulopa en ég sá að nokkrar voru að nota hann í samheklinu og ég var mjög spennt... sérstaklega þar sem ég elska lopann og svo skemmir ekki verðið á honum heldur fyrir enda mjög dýrt að kaupa gæðagarn í teppi :) Ég notaði sjö liti og raðaði þeim á handahófskenndan hátt en þó ekki þannig að ljósu litirnir röðuðust saman. Ég notaði fjóra brúntóna liti, hvítan, fjólubláan og mosagrænan og finnst þetta koma mjög vel út.

Teppið er mjög létt og lipurt og ég mæli með plötulopanum... eina spurningin er hvernig endingin verður... en þá bara hekla ég bara fleiri enda sakna ég þess pínu að vera búin með það þar sem mér finnst þetta afar skemmtilegt mynstur. Teppið mitt er ca. 135 x 190 cm að stærð.

Garn: einfaldur plötulopi
Heklunál: 5,0 mm
Uppskrift: Ég fór ekki eftir neinni uppskrift en teppið er í líkingu við þetta teppi
http://www.ravelry.com/patterns/library/vintage-crocheted-throw--afghan

Viðbót 28.01.2013
Ég var að skoða teppi á Ravlery (já ég veit ég er teppasjúk) og sá þar uppskrift sem er ókeypis... en hún er ekki eins en samt svolítið svipuð:
http://www.ravelry.com/patterns/library/express-v-stitch-ripple-afghan

28. desember 2012

Föt á Barbie

Loksins get ég sýnt það sem ég sat stíft við og heklaði eftir prófin... það voru hekluð föt á Barbie sem ég laumaði í pakkana hjá þremur frænkum mínum... ég var auðvitað á síðustu stundu að gera þetta þar sem þetta var skyndihugdetta... en þetta hafðist þó í tæka tíð en ég saumaði smellur á síðasta kjólinn á Þorláksmessu :)

Það er svolítil vinna í kjólunum enda eru þeir bara eins og litlir dúkar... en hér koma myndir af þeim

Heklaðir Barbie kjólar

Heklaðir Barbí kjólar

Heklaður Barbie kjóll

Heklaður Barbie kjóll bak

Fjólublár Barbie kjóll

Fjólublár Barbie kjóll bak

Heklaður Barbie jólakjóll

Heklaður Barbie jólakjóll bak

Ég óttaðist það að frænkum mínum þættu kjólarnir of gegnsæir þannig að ég ákvað að hekla nærbuxur sem enduðu svo sem bikiní en ég gerði þau bara upp úr mér:)

Heklað Barbie bikiní

Heklað Barbie bikiní bak

Heklað Barbie bikiní

Hekluð Barbie föt

Heklað Barbie bikiní bak

Heklað Barbie bikiní

Uppskriftina af kjólunum má finna inn á Ravelry:
http://www.ravelry.com/patterns/library/morning-glory-fashion-doll-dress

Ég notaði heklunál 1,75 mm en svo er garnið mismunandi:
Bleika garnið: Coats Puppets Eldorado 10
Fjólubláa garnið: Sandnes Garn Mandarin Heklegarn
Rauða garnið: Marks & Kattens Merc. Bomullsgarn 12/3

25. desember 2012

Jólasokkar ofl.

Hér koma myndir af jólasokkum sem ég saumaði... ég reyndar gerði einn annan sem ég gaf í jólagjöf eitt árið og hef því miður ekki mynd af :)

Bucilla jólasokkur
Bucilla jólasokkur

Fyrsti jólasokkurinn
Fyrsti jólasokkurinn sem ég saumaði

Hér eru þeir hangandi á arninum
Hér eru þeir hangandi á arninum

Ákvað svo að leyfa einni að fljóta með af tréföndri sem ég gerði fyrir ansi mörgum árum... ég gerði nokkur svona og gaf í jólagjöf eitt árið... mér finnst þetta alltaf jafn sætt :)

Jóla tréföndur
Jóla tréföndur

24. desember 2012

Ömmuföndur

Amma mín er mikill föndrari og ég veit alveg hvaðan ég erfði mína föndurbakteríu :) Ég var búin að segjast ætla að birta myndir af einhverju af föndrinu hennar í gær  en því miður komst ég ekki til þess í gær sökum anna. Þetta er nú samt bara brot af því sem ég á... ég kemst ekki yfir að taka myndir af hverju einu og einasta... en hér koma nokkrar myndir af föndrinu hennar :)


Jólapóstpokinn minn
Jólapóstpokinn minn

Jólatrésdúkurinn minn
Flotti jólatrésdúkurinn

Svo fallegur
Verð bara að setja inn nokkrar myndir af honum

Gleðileg jól :)
Gleðileg jól

Jólaveggplatti
Jólasveinn - veggplatti
Jólaseglar á ískápinn
Jólaseglar á ískápinn

Snjókarlapar
Snjókarlapar

Par á bekk
Par á bekk

Par á lurk
Par á lurk

Þessi er mjög hjálpsamur :)
Þessi er mjög hjálpsamur :)

Kella á lurk
Kella á lurk

Par á lurk og jólasveinn á sleða
Par á lurk og jólasveinn á sleða

Kella í gylltum stól
Kella í gylltum stól

Pör á sleða
Pör á sleða - þessi eru með þeim elstu

Jólasveinn
Jólasveinn

Jólasveinn með fullt af pökkum
Jólasveinn með fullt af pökkum

Fullt af öðru dóti :)
Fullt af öðru dóti :)
Ég elska allt jólaskrautið hennar... ég held að ég muni aldrei ná að afkasta eins miklu og hún hefur gert... hún seldi mikið og svo eiga allir í fjölskyldunni svo mikið eftir hana :) Ef sjónin hennar væri betri í dag þá væri hún örugglega enn á fullu :)