Ég skellti mér í nám og mér sýnist ég ekki hafa nánast neinn tíma til að prjóna... prjóna samt yfirleitt þegar ég er að horfa á sjónvarpið (nema þegar þættirnir eru á dönsku) en ég er bara í svolítið stóru verkefni... er að prjóna á mig úr léttlopa og á prjóna 4,5 sem er svolítið smátt fyrr minn smekk... þannig að miðað við hvað ég get prjónað lítið í einu þá á ég eftir að vera marga mánuði að þessu :)
Þrátt fyrir að ég sakni þess svolítið að prjóna þá er það nú kannski líka af því að ég er að gefa mér svakalegan tíma í námið þar sem mér finnst eitthvað svo svakalega gaman að læra (vonandi helst það allt námið)... þannig að ég býst ekki við að skella neinu hérna inn á næstunni... ég er nú samt hvað á hverju að eignast lítinn frænda sem ég væri sko á fullu að prjóna á ef ég hefði ekki skellt mér í nám... en hvað um það... ég prjóna bara eitthvað á hann næsta sumar :)
4. september 2011
10. ágúst 2011
Heklað utan um stóra krukku
Mér áskotnaðist fyrir nokkrum árum nokkrar risastórar krukkur sem ég hafði notað undir kerti en ákvað núna að hekla utan um eina til að skreyta fyrir utan hjá mér í tilefni þess að ég bý í bleika hverfinu á bæjarhátíð þar sem ég bý. Mér fannst þetta bara lukkast nokkuð vel en fannst ég verða að prufa að hekla líka utan um lokið svo að krukkan gæti staðið úti alltaf og myndi ekki fyllast af vatni... þannig að ég skelli bara lokinu á þegar ég er ekki að nota hana. Ég var nú samt í vandræðum með lokið þar sem ég sá nú fram á að þetta myndi fjúka af í næsta roki þannig að ég setti teppalím ofan á og smá á hliðina og vonandi dugar það til :)
Annar er ég svo svakalega symmetrísk að ég verð að hekla mér aðra :)
Garn: Sandnes Garn Mandarin Petit
Heklunál: 3,5 mm
Uppskrift: engin - er bara upp úr mér
Annar er ég svo svakalega symmetrísk að ég verð að hekla mér aðra :)
Garn: Sandnes Garn Mandarin Petit
Heklunál: 3,5 mm
Uppskrift: engin - er bara upp úr mér
Labels:
endurvinnsla,
Heklað,
Krukkur,
Rómantík
27. júlí 2011
Strákavesti handa Eyþóri
Ég er ekkert hætt að blogga... er bara búin að vera að ferðast og vinna í pallinum heima þannig að maður hefur því miður minni tíma til að vera að prjóna eða hekla... en svona er þetta... en ég er samt alltaf eitthvað aðeins að gera :) Svo er ég að fara í nám í haust þannig að ég óttast að afköstin í hannyrðunum muni eitthvað verða minni en hér áður :)
En hér er eitt sem ég er búin að prjóna en það fer í afmælispakkann handa Eyþóri frænda mínum :)
Garn: Sandnes Garn Smart
Prjónar: 3,5 mm
Uppskrift: Prjónablaðið Ýr nr. 42
En hér er eitt sem ég er búin að prjóna en það fer í afmælispakkann handa Eyþóri frænda mínum :)
Garn: Sandnes Garn Smart
Prjónar: 3,5 mm
Uppskrift: Prjónablaðið Ýr nr. 42
28. júní 2011
Skorradalssjal
Var í útilegu í Skorradalnum og prjónaði mér sjal... elska að prjóna eða hekla í útilegum :) Þetta er fyrsta sjalið sem ég geri eftir útlenskri uppskrift (hafði nú reyndar byrjað á Haruni sjali en ég er í fýlu út í garnið... þarf samt að fara að klára það) en þetta sjal er mjög einfalt og mjög gott til að byrja á :)
Garnið sem ég notaði var sokkagarn sem ég keypti í London í maí... elska litinn en ég keypti nú tvær dokkur af þessu en það fór rétt tæp ein dokka (100 g) af garninu í sjalið... kannski maður prjóni sér sokka í stíl hahaha
Garnið sem ég notaði var sokkagarn sem ég keypti í London í maí... elska litinn en ég keypti nú tvær dokkur af þessu en það fór rétt tæp ein dokka (100 g) af garninu í sjalið... kannski maður prjóni sér sokka í stíl hahaha
Prjónar: 4,0 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/holden-shawlette
15. júní 2011
Lopahúfa og vettlingar með áttblaðarósinni
Ég átti svo mikinn afgang af lopa eftir að ég prjónaði lopapeysuna Valdísi að ég mátti til með að skella í húfu og vettlinga... enda sumarið búið að vera fremur svalt að undanförnu... þetta á eftir að koma sér þrusuvel í útilegunum í sumar :) Reyndar hefði ég viljað setja stjörnuna úr mynstrinu af Valdísi á vettlingana en þá hefðu þeir verið of stórir :) En litirnir passa við svo að þetta gengur vel við peysuna :)
Garn: Tvöfaldur plötulopi
Prjónar: vettlingar: 4,0 mm og 5,0 mm - húfa: 5,5 mm.
Uppskrift: Fleiri prjónaperlur
Garn: Tvöfaldur plötulopi
Prjónar: vettlingar: 4,0 mm og 5,0 mm - húfa: 5,5 mm.
Uppskrift: Fleiri prjónaperlur
9. júní 2011
Fljúga hvítu fiðrildin...
... fannst vera kominn tími á að taka niður hekluðu snjókornin sem hanga í stofuglugganum... kannski kemur þá sumarið þegar þau fara niður og þessi hvítu fiðrildi fá að sveima fyrir innan gluggann :)
Garn: Sandnes Garn Mandarin Petit
Heklunál: 3,0 mm og 2,5 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/clouded-yellow-butterfly
Garn: Sandnes Garn Mandarin Petit
Heklunál: 3,0 mm og 2,5 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/clouded-yellow-butterfly
25. maí 2011
Lopapeysan Valdís
Var að klára að prjóna þessa lopapeysu handa mér... og mér finnst hún svakalega flott :) Eini gallinn er að hún er prjónuð venjulega og urðu ermarnar 10 cm of langar og þar af leiðandi varð peysan líka 10 cm síðari en ég gerði ráð fyrir... þarf því að stytta ermarnar og peysan nær mér næstum niður að hnjám... þannig að þetta er svona lopapeysukápa :) Þetta hefði aldrei gerst ef peysan hefði verið prjónuð ofan frá því að þá getur maður svo auðveldlega mátað hana ;)
Flott peysa
Finnst mynsturbekkurinn svo fallegur
Skellti einni með af henni nýþveginni þar sem sniðið á henni sést vel
Garn: Tvöfaldur plötulopi
Prjónar: 5,5 mm og 6,0 mm
Heklunál: 5,0 mm
Uppskrift: Prjónakistan




















