Ákvað að stofna síðu á Facebook svo að fólk geti líka fylgst með þar þegar ég set inn nýjar bloggfærslur. Mér tókst einhvern veginn þegar ég stofnaði þetta blogg að klúðra Followers þannig að það er ekki hægt að fylgjast með blogginu... ég fæ aldrei þennan möguleika upp aftur hjá blogger... svo að ég gerði bara like-síðu í staðinn á Facebook :)
Þið sem viljið fylgjast með mér á Facebook þá getið þið gert farið á síðuna með því að smella á myndina eða með því að smella hérna: http://www.facebook.com/Fondrari ... ekki gleyma að gera "líkar þetta" eða "like" þegar þið farið á síðuna :)
15. mars 2012
13. mars 2012
Lopapeysa úr einföldum plötulopa
Það er brjálað að gera hjá mér í skólanum þessa dagana sem er agalegt því að þá hef ég svo lítinn tíma til hannyrða... er samt búin að prjóna Unni sem er úr einföldum plötulopa en mig er búið að langa til að prófa að prjóna úr einföldum plötulopa lengi. Ég byrjaði á ermunum til að tékka á prjónafestunni og fékk ég hana rétta þar... en svo þegar ég er komin með stærra stykki þ.e. búkinn þá fer ég að prjóna lausar... þannig að stærðin 4-5 ára varð eiginlega 5-6 ára ... þannig að frændi minn sem verður 5 ára í ágúst fær að eiga peysuna :)
Það kom á óvart hvað lopinn er í rauninni sterkur einfaldur en mér fannst hann samt vera svolítið þunnur í mynstrinu... og svo ákvað ég að hekla meðfram uppfitinu og affellingunni til að styrktar. Liturinn á peysunni er túrkis en kemur út á myndinni eins og strumpablár :)
Garn: Plötulopi
Prjónar: 3,5 og 4,5 mm
Uppskrift: Fleiri Prjónaperlur

17. febrúar 2012
Heklað glamúrsjal
Ég eeellska að hekla... finnst það miklu skemmtilegra og fljótlegra en að prjóna... rakst svo á þetta glitrandi garn og þar sem ég elska allt sem glitrar þá bara varð ég að kaupa það... langaði helst til að kaupa alla litina... en þar sem mér finnst litaskipt garn koma svo vel út í sjölum þá ákvað ég að kaupa svoleiðis. Það var fínt að hekla úr garninu en það voru hnútar í því eins og ég hef svo sem oft lent í áður í litaskiptu garni og ég þoli ekki þegar litunum er ekki skeytt rétt saman... kannski ég ætti bara að fara að kaupa einlitt garn... en bjútí is pein... þannig að ætli maður verði bara ekki að láta sig hafa þetta ;)
Ég fór strax að leita að uppskriftum á Ravelry og þar sem mér finnst svo skemmtilegt að hekla þá fór ég að leita að slíkum... ég byrja yfirleitt alltaf að kíkja þegar ég kaupi nýtt garn hvað hefur verið gert úr því á Ravelry... sá að þarna hafði einhver gert úr öðrum ljósari lit svona sjal þannig að ég smellti mér á það enda var ég búin að vera með uppskriftina lengi í favorites :)
Garn: King Cole Galaxy
Heklunál: 5,5
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/elise-shawl
Uppfært 06.04.2012
Hef ákveðið að selja svona sjöl sjá nánar:
http://www.fondrari.blogspot.com/2012/04/hekla-sjal-til-solu.html

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Hef ákveðið að selja svona sjöl sjá nánar:
http://www.fondrari.blogspot.com/2012/04/hekla-sjal-til-solu.html
16. febrúar 2012
Prjónuð og þæfð húfa
Mig langar helst bara til að sleppa því að læra og prjóna og hekla út í eitt... er búin að vera að taka ansi mikinn tíma frá lærdómnum að undanförnu... en svona er ástríðan mikil hehehe
Ég var mjög fljót að prjóna þessa húfu en fannst hún vera heldur stór... ég bara nennti ekki að gera prjónafestuprufu fyrir svona lítið stykki ;) Þannig að þegar ég þvoði hana fannst mér hún stækka enn meira þannig að hún fór bara í þurrkarann og passar hún núna betur en áferðin á henni er ekki eins falleg eins og áður en hún fór í þurrkarann... en hún er örugglega miklu hlýrri ;)
Uppskriftin var mjög auðveld en ég var smá tíma að ná berjunum þar sem ég prjóna brugðið öfugt (maður er svo miklu fljótari að prjóna brugðið þannig) og það var ógjörningur að prjóna brugðið öfugt þar sem maður þurfti að prjóna þrjár saman og ég nennti ekki að snúa öllum lykkjunum við... þannig að ég þurfti að kíkja á myndband hvernig maður prjónar brugðið rétt... þannig að núna kann ég að prjóna brugðið bæði rétt og öfugt ;)
Garn: Trysil Garn Iglo soft
Prjónar: 7,0 og 9,0 mm
Uppskrift: http://www.garnstudio.com/lang/en/pattern.php?id=2600&lang=en
Hér er svo hægt að sjá myndband sem sýnir hvernig berin eru gerð.

Labels:
Húfur,
Prjónað,
Uppskriftir,
Þæfing
8. febrúar 2012
Heklað sjal
Ég byrjaði á sjalinu fyrir örugglega ári síðan en svo bara var því hent inn í skáp... svo er það búið að vera að þvælast endalaust fyrir mér svo að ég bara ákvað að klára það... þá hættir það að vera að þvælast svona fyrir mér ;)
Ég er nú búin að gera nokkur svona áður... þið getið séð rautt og hvítt svona hér á blogginu en núna ákvað ég að setja miklu meira kögur og líka lengra... mér finnst það miklu flottara :)
Garn: Trysil Garn Iglo soft
Magn: rúmar 7 dokkur
Heklunál: 6,5
Uppskrift: Prjónablaðið Ýr nr. 36
Athugasemdir: stækkuð upppskrift

7. febrúar 2012
Legghlífar
Hér eru legghlífarnar sem ég prjónaði handa mér... rakst á uppskriftina í Dagskránni en hún er frá Prjónakistunni. Ég var komin með nóg að vera endalaust með blautar skálmar eftir að hafa verið að vaða snjóinn... en sennilega snjóar ekki meira í vetur fyrst að ég er komin með legghlífar ;)
Uppskriftin í blaðinu gerir ráð fyrir grönnum leggjum og er úr léttlopa... þar sem ég er ekki með granna leggi þá notaði ég tvöfaldan plötulopa og stærri prjóna... en ég hafði þær ekki eins langar heldur þar sem ég ætla bara að láta þær púffast neðst á kálfunum en ekki toga þær upp að hnjám :)
Ég mæli með að þið skellið í legghlífar og verði tilbúnar til þess að vaða snjóskaflana næst þegar það kemur snjór ;)
Garn: Tvöfaldur plötulopi
Prjónar: 4,0 og 5,0 mm
Uppskrift: http://www.dfs.is/vefblod/2127/files/assets/seo/page6.html

Legghlífar,
Prjónað,
Uppskriftir
29. janúar 2012
Einfaldir vettlingar úr léttlopa
Ég er pínu með vettlingaæði núna... sennilega af því að ég get bara haft eitthvað lítið á prjónunum þar sem ég er í pásu frá ýmsum stærri verkefnum... þannig að ég ætla ekki að ráðast í stærri verkefni fyrr en hin eru búin :)
Ég vildi gera barnavettlinga þar sem ég fékk smáa gesti til mín um jólin sem höfðu gleymt að taka vettlinga með sér og þá hefði nú verið gott að frænka hefði getað átt vettlinga handa þeim... það verður bara næst ef ég verð ekki búin að gefa þá hehehe
Ég rakst á þessa vettlinga og mér fannst þeir svo sniðugir því að það skiptir ekki máli á hvora höndina þeir fara. Ég mun örugglega gera fleiri svona en ég held að ég kunni betur við að hafa smá mynstur í þeim :)
Garn: Léttlopi
Prjónar: 3,5 og 4,0 mm
Uppskrift: http://www.ravelry.com/patterns/library/einfaldir-lopavettlingar-me-umaltungu

Börn,
Prjónað,
Uppskriftir,
Vettlingar